30mars

www.sindri.biz

Jæja búinn að opna http://www.sindri.biz
30. mars 2007 klukkan 04:57
Sindri Arnarson
1 athugasemd
27mars

Ástfanginn

Ég held að ég sé ástfanginn, Hún gagntekur mig alveg! sé bara stjörnur
þegar ég lít á mynd af henni... Já þið lásuð rétt! Sindrinn ykkar er
ástfanginn upp fyrir haus af henni Jessicu Alba! En núna er ég kominn
með ósnorta athygli ykkar :D Strákurinn er á leiðinni til Englands
réttara sagt til Manchester! Horfa á viðureign Man Utd og Westham!
Við Pétur, Árni og Gísli(pabbi péturs) munum fljúga út 11 mai nk.. Fínasti
dagur til að fá orlofið sitt :D...

Annars kíkti ég á grímuball hjá kleppi síðasta laugardag.. Held að þetta
hafi verið vistmenn.. Sá allavega að Valdi skemmti sér konunglega en ég
var bara ekkert að fýla þetta þarna... Þekkti engann og æji ég veit ekki.
Endaði með því að kíkja bara í góðravina hóp hjá þeim Mófa & Lenu :D
Æji ég veit ekki afhverju ég er að skrifa eitthvað hérna því það hefur
ekkert bitastætt gerst hjá mér :D þannig að ég ætla bara að enda þetta
Later beibs

27. mars 2007 klukkan 21:09
Sindri Arnarson
6 athugasemdir
21mars

Ja guten tag mein herren und damen!!!

Hvað segiði svo ég er bara andskoti hress hérna í borg ótta og viðbjóðs!
Nýskriðinn úr sturtu að reyna að snúa þessum helvítis sólarhring aftur
á heilbrigðann tíma :/ Ætla mér að kíkja með þeim Valda & Nikka á 300 í
kvöld! Verð örugglega ekki sá skemmtilegasti því ég verð búinn að vaka
í sólarhring þegar myndin loksins byrjar :) En annars var síðast helgi
snilld! Á laugardaginn þá var síðasta kvöldið sem kósý var opið :( Ég
fékk að gista hjá þeim Heiðu , Þórdísi & Freyju skvísum :) Var í kvennabúri!
og vil ég nátturulega þakka þeim fyrir gistinguna sérstaklega henni Freyju
þar sem hún var svo góð að "lána" mér rúmið sitt :)

Byrjuðum kvöldið á að spila party & co sem er alveg fínasta spil til að
byrja að drekka við :) Auðvitað rústuðum við, Freyja & Þórdís Heiðu og
Sorrymanekkihvaðhúnhét :) 5 geisladiskar á móti 2 minnir mig :) Sötruðum
nokkra bjóra og fengum okkur galíanó skot með.... Orðin soldið íðí sérstaklega
Heiða ákvaðum við að skella okkur á kósý.... Ég vissi ekki að það væru svona
margir kvennmenn á reyðarfirði! þetta var nánast 50/50 af kynjunum!! Held að
Heiða eigi heiðurinn af fyllstu manneskju laugardagsins ;) Ég ætla að eiga annað
sætið :) endaði soldið skrautlegur þegar þeir fóru að selja flöskurnar á barnum
á smá pening.... Keypti t.d flösku af Gulum Gajol á 1000kr (ca 10staup eftir).
skreið heim um ca hálf 5 leytið :)

Á heilaga þynnkudeginum ákvað Þórdís að vekja mig kl 10! Ég var enþá fullur þá!
Það var reyndar ágætt því Freyja fór og keypti fyrir okkur hamborgara ;) svo
gláptum við á Lemony Snicket's A Series of Unfortunate Events sem er hin ágætasta
ræma.... Flaug í borg ótta og viðbjóðs seinnipartinn :/ Elskulegur Valdi minn
pikkaði mig upp(verður alltaf svo fúll ef ég minnist ekki á það;)... Fór svo
með honum í fótbolta um kvöldið.. Duglegur ég! Held samt að ég hafi gert eh
við ökklann á mér því ég fór á snjóbretti daginn eftir og gat ekki gert neitt
útaf ökklanum! :( Beið því aleinn og yfirgefinn með dauðann síma eftir Andra , Bigga
og Heiðu í ca 1klst :/ Fór einhverjar 2 ferðir á brettinu!

Jáhhh held bara að þetta hafi coverað allt saman sem er að gerast í lífi mínu síðan
síðasta bloggs... Eða jú fer á grímuball hjá kleppi á föstudaginn! Nei vistmenn
meiga ekki koma! Allavegana sé ykkur seinna og ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera!
21. mars 2007 klukkan 11:45
Sindri Arnarson
3 athugasemdir
13mars

Ehhhh ehhhhhhhh ehhhhhhhhhhhhhh

Jæja þetta gengur ekki lengur að vera svona
latur við að blogga er að nálgast einn ónefndann :)
Hef nú held ég frá mörgu að segja. Byrjum bara
á byrjuninni. Strákurinn splæsti sér í eitt stykki
www.sindri.biz og mun þar rísa á næstu dögum
hin glæsilegasta vefsíða þessarar aldar! Auk þess
fékk ég mér nýja msn addressu en hún er msn@sindri.biz
Add me or die! :) Svo var árshátíð Securitas haldin
síðasta laugardag með pompi og prakt (segir mar það ekki
annars ?) Þar var heill hellingur af fríðu fólki mætt
og skemmti ég mér alveg konunglega! Varð reyndar örlítið
ölvaður en hver var það ekki ? Splæsti mér á þessi fínu
jakkaföt á þvílíku verði í herralagernum..... Svo sótti
strákurinn um áframhaldandi vinnu við álverið :) Vona
svo innilega að ég fái starfið... Og auðvitað þyfti ég
að flytja hingað.. En það er ekkert svo slæmt.. Er búinn
að kynnast svo mikið af fólki og er alveg að fýla sveita
sæluna ;) Veit einhver um íbúð til að leigja ? Jæja kem
með eitthvað jucy næst :) hver veit nema það verði á nýju
síðunni ? En þangað til næst... Bleeeeees
13. mars 2007 klukkan 19:51
Sindri Arnarson
11 athugasemdir
27febrúar

Guten Tag

Klukkan er 08:48 á þessum fallega vetrardegi hérna á Angryfjord
Reyndar er ekkert fallegt við þennan dag... Sólinn er að gera mig
geðveikann og helvítis rok hérna. Nóg um það...

Síðustu helgi var
hin árlega "Lemjum Valda með spýtu" ferðin þar sem Ég, Andri, Valdi
og Nikki skelltum okkur uppí eflingarbústað í svignaskarði. Verð að
játa það að það var ekki mikið drukkið þarna miðað við áfengið sem
við tókum með! En það var bara fínt chilluðum bara með bjór í annari
og spiluðum smá póker með hinni(texas hol'em), og auðvitað var skellt
sér í pottinn og spjallað þangað til við vorum eins og rúsínur.

Grilluðum dýrindis svínahnakka á laugardeginum, marineruðum upp úr
bbq sósu ásamst fleyra góðgæti... Fattaði á sunnudaginn að það var ekki
búið að lemja Valda þannig að ég tók mig bara til og fann eldhúsáhald
úr viði og lamdi hann létt í öxlina :)
eldhúsáhald

Annars er ekkert að frétta nema að:
Erna hans Árna ungaði út 17marka og
53cm prinsessu í gærdag og náttúrulega
óskar maður þeim til hamingju og vonar
að þau skýri hana Sindrínu
(Hljómar vel er þaggi?), Svo er strákurinn
kominn á langþráða dagvakt! var kominn
með nóg af næturlífinu. Maður á allavegana
 kvöldið eftir ef maður er á dagvöktunum.
Jæja þá held ég að þetta sé bara komið hjá mér

Niðurstaða úr könnunninni "Ef þú ættir að velja"
  • Jessica Alba 10 / 27%
  • Angelina Jolie 3 / 8%
  • Jennifer Aniston 3 / 8%
  • Sindri Arnarson 19 / 51%
  • Penelope Cruz 2 / 5%
  • 27. febrúar 2007 klukkan 08:48
    Sindri Arnarson
    8 athugasemdir
    15febrúar

    3farar... og fl

    Woddy
                 Woody Allen                                           Larry King                                                    Api

    Jæja kvikindinu leiðist aðeins... :) En Annars eiginlega ekkert að frétta nema vinna og sofa... Missi af innflutnings partý hjá Þórdísi, Freyju og Heiðu næstu helgi... Vill einhver sjálfboðaliði vinna á laugardaginn ?? Help a brother out here... Næsta helgi verður snilld en þá förum við í Árlegu lemjum Valda með spýtu ferðina en þangað fer góður hópur drengja til þess að hengja Valda upp á löppunum og lemja hann með spýtu.... Svo verður árshátið Securitas haldinn 10mars nk... Maður lætur sig ekki vanta þar, Þar sem ég var að vinna þegar jólahlaðborðið var... (á afmælinu mínu!)... Jæja heyri í ykkur líklegast á mánudag. bæbæ

    ps. Ákvað að breyta aðeins dótinu og setja inn 2fara :)

    The Dalton brothers
                        Sindri,  Rúnar & Pétur                                                        Dalton bræðurnir
    15. febrúar 2007 klukkan 23:56
    Sindri Arnarson
    7 athugasemdir
    12febrúar

    Untitled

    Klöppum fyrir stráknum sem nennti að blogga!
    Klöppum fyrir Bjarna sem fór ekki á djammið!
    Klöppum fyrir Samme sem fór á djammið!
    Klöppum fyrir Dóra sem bað mig að koma fyrr!
    Klöppum fyrir Rúnari sem átti afmæli í dag!
    Klöppum fyrir Halla sem fékk óó á fótinn!

    Jæja Strákurinn kíkti í bæinn á síðasta mánudegi
    Þegar Ég kom útá flugvöll þá hringir Dóri og byður
    mig um að sjá til þess að eh Pólverji myndi fara
    um borð (verið að senda hann heim)... Kom smá
    ConAir fýlingur í þetta :) En annars var hann
    sem rólegastur og fór sjálfviljugur um borð...
    Valdi pikkaði mig svo upp og splæsti ég sjálfum mér í
    Sjónvarpsflakkara og seríu 1-3 af Little Britain
    Argandi snilld þessir þættir (ehh ehhhh ehhhhhhh)....

    Little Britain

    Öll vikann leið svo hægt og rólega var ýmist með þeim
    Mófa & Lenu eða Valda mínum.. En Föstudagurinn var
    heljarinnar fyllerí með sænska folanum honum Samme
    Byrjaði á því að pikka hann upp um eitt leitið niðrá hótel
    þar sem við fórum aðeins að rúnta um borg ótta og viðbjóðs
    sýna honum ýmsa hluti.. Keyptum okkur sitthvora tegundina
    af öl... Mæli með Newcastle bjórnum!! Bara góður smakkast
    eins og maltöl! Létum svo um 5 hálf 6 leytið renna í pottinn
    og sátum í honum í heila 2 tíma sötrandi bjór og spjalla.

    Strawberry's











    Þegar við komum niðrí bæ hittum við á hann Óla Dropp
    og héldum áfram að sötra með honum.... Skelltum okkur á smá
    jarðaber og fleyri góða staði þangað til við týndum honum
    á Dubliner... Enduðum djammið um kl 5 um morguninn....

    Laugardeginn eyddi ég eiginlega í þynnku... Svaf og horfði
    á southpark.. Fór rétt út úr húsi til að ná mér í subway.


    Helgina 23-25feb verður svo farið í hina Árlegu lemjum Valda
    með spýtu ferðina, Ég og Valdi fórum og pönntuðum bústað
    hjá eflingu og verður þetta eflaust gífurlegt fjör hjá okkur
    strákunum.


    Ps. Setti inn nýja könnun.... og endilega kíkið á nýjasta bloggarann
    hann Sjonna...

    12. febrúar 2007 klukkan 23:15
    Sindri Arnarson
    6 athugasemdir
    04febrúar

    3Farar

    3farar

    Hef samt ekki alveg hugmynd hver bjó þetta til en mig grunar hann Gunna :) Verð samt að viðurkenna að ég var búinn að vera að spá í að gera þetta en ég nenntikki að finna myndir af mér og Andra . Sjáumst á mánudaginn!
    Ps, Varð að breyta aðeins myndinni :) Þið getið séð hina hérna
    04. febrúar 2007 klukkan 03:12
    Sindri Arnarson
    7 athugasemdir
    03febrúar

    Hversu HEIMSKT þarf fólk að vera ?

    Hversu HEIMSKT þarf fólk að vera ?

    ég er að spá í að leggja þetta bara fyrir mig að senda fólki
    e-mail og segja þeim að þau hafi fengið 100 milljón skrilljónir
    í arf frá einhverjum gömlum karli frá madagaskar eða eitthvað
    álíka heimskulegt. Segja þeim að mig vanti pening fyrir leyfisbréfum.
    Alltaf meiri og meiri pening. Láta þau svo millifæra á einhvern bankareikning
    í Madrid og walla ég er orðinn múltí milljóner, ætti að geta gengið
    upp..... Who's with me!?!?!

    En annars er ekkert að frétta af kvikindinu nema það að hann er kominn
    á betri vaktina!! :) Og fer í frí á Mánudagsmorgunn(samkvæmt vakataplaninu
    hans Dóra) Og vona þá að ég fái fyrstu heilu frívikuna! En allavegana
    ætla að hafa þetta stutt og fá mér eitthvað að borða :) later beib
    Stupid people

    03. febrúar 2007 klukkan 01:16
    Sindri Arnarson
    1 athugasemd
    30janúar

    Góða kveldið herrar mínir og dömur

    Jæja fríið mitt styttist úr einnri og hálfri viku í bara hálfa!
    Þar sem ég hef curse á mér að neita sjaldann yfirvinnu.. En hver
    getur neitað honum Dóra þegar hann biður svona fallega ? með
    hvolpaaugun og grátinn í kverkunum! En annars átti ég ágætis frí
    í bænum..

    Við af betri vaktinni vorum helvíti dugleg að gera
    allann andskotann þ.a.m. Kíktum við á miðvikudagskvöldinu í keilu
    þar sem ég vann báða tvo leikina á minni braut :) Og að mig minnir
    hafi Lena stútað hinni brautinni.. Enda æfði hún keilu fyrir nokkrum
    árum.

    Daginn eftir var svo skellt sér í pool og mér gekk vægast sagt hörmulega
    held að mér hafi tekist að tapa öllum leikjunum :( Föstudagurinn var svo
    bara chill með Mófa og Lenu í call of duty 2 þar sem við vorum að reyna
    að finna sömu servera og hann Bjarni... En gekk helvíti illa...

    Svo loksins var partý aldarinnar hjá honum Gunna mínum, Þar var öll vaktinn
    mætt ásamt nokkrum fylgihlutum :) Ætti maður kannski að kalla þetta pylsupartý
    ársins ? Skemmtum okkur konunglega þangað til um morguninn sem eh drama gerðist
    nennikki alveg að skrifa um það... Man bara að ég borðaði vöfluna mína meðan ég
    horfið á nokkra vera að rífast :)

    Sunnudagurinn var soldið chill kíkti á eina leiðinlegustu mynd sem ég hef nokkurn
    tíman séð (Babel) með henni Heiðdísi. Ok ég hefði alveg getað fýlað hana en ég
    var bara svo þreyttur að ég sofnaði eh tíman eftir hlé + það að við fengum bara
    sæti fremst.. Óþægilegt að vera svona framarlega :/ En annars var þetta ágætt :)
    Langaði að kíkja á kaffihús eftir það en enginn virtist vilja það :/ Þannig að
    ég fór bara í húsmóður gervið og setti í svosem 2 þvottavélar.

    Jæja kvikindið ætlar að fara að gera eh svosem hella uppá kaffi eða bara surfa á
    netinu :) Og valdi Þú verður í fríi næst þegar ég kem :) later folar

    Ps. Ákvað að enda könnunina og hérna eru niðurstöðurnar

    1.sæti   Bjarni (43)
    2-3.sæti Andri & Gunni (33)
    4.sæti   Tommi (3)
    5.sæti   Ég sjálfur (2)
    6.sæti   Lena (1)

    30. janúar 2007 klukkan 01:41
    Sindri Arnarson
    11 athugasemdir

    NÝTT MSN

    Strákurinn ákvað að splæsa sér í sindri.biz og er þá kominn með nýja msn addressu sem er msn@sindri.biz

    Auglýsing

    Klukkan

    Teljari

    • Heimsóknir í dag: ...
    • Þennan mánuð: ...
    • Frá upphafi: ...

    Könnun

    Er það

    Ýmislegt

    Gullgerðarmenn
    hittumst í kvöld kl. 21 og skiptumst á uppskriftum.

    Fílahirðar
    Hreinsið upp eftir dýrin ykkar.

    Tapað fundið
    Kartafla í laginu eins og Megas á hvolfi í hjólbörum týndist á miðju Klambratúni. Fundarlaun.

    Til sölu
    Vel með farinn fimmþúsundkall. Aðeins beyglaður efst í vinstra horni. Tilboð óskast.

    Skemmtibátur
    fæst í skiptum fyrir lystisnekkju. A.v.á.

    Leit

    Innskráningar kubbur